bloggsvæði Bjössi

Velkomin(n) á svæðið MITT

31.01.2008 08:36:39 / briet

Superbowl

Nú styttist í þann magnaða viðburð, Superbowl. Ég hef eins og áður hefur komið fram fylgst vel með NFL í ár og hlakka því mikið til. Mínir menn í New England eru að fara vinna New York Giants, pottþétt. Þetta er bara ferlega seint á sunnudagskvöldið en ég ætla vaka. Er pínu sár yfir því að Green Bay skildi ekki hafa komist í leikinn. Finnst Manning yngri (leikstjórnandi Giants) ekki alltof spennandi. Vildi sjá Favre þarna.

Fyrst ég er að minnast á TV þá get ég ekki annað en glaðst yfir því að önnur sería af Trúðnum danska hefst á ruv í kvöld. Algjörir snilldar þættir. Fannst þátturinn þar sem þeir ákváðu að testa dóp stórkostlegur. Hvernig það snérist allt í höndum þeirra sem komu að. Skora á alla sem hafa ekki hugmynd um hvað ég er að tala um að kíkja í kvöld klukkan 21:30. Eitt af því örfáa sem ruv gerir gott.

Alveg óþolandi hvað ruv hefur tekist að eyðileggja laugardagskvöldin í vetur! Ömulegur þáttur þarna laugardagslaugin. Fæ ónotatilfinningu þegar ég pæli í þessu.

Og skömm að því því hvernig þeir bola íþróttunum út. Það er ekkert sem þeir hafa lengur þar. Hef meira að segja miklar áhyggjur af því hvernig EM í sumar verði gerð skil.


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.01.2008 12:07:30 / briet

Áfram með ófagmennsku

Já ég skrifaði hér að mér þætti þetta einkennilegt að sumar íþróttir eru teknar af lífi fyrir slakt gengi á meðan aðrar eru í bómul.

Nú hefur umræðan verið þannig að handboltastrákarnir koma til dyranna eins og þeir eru klæddir, að of erfiður undirbúningur fyrir keppnina hafi komið niður á liðinu, að of margir séu að koma úr meiðslum, að of margir séu ekki að spila með sínum félagsliðum og margt fleira tekið til og árangurinn talinn skiljanlegur. Aldrei er þetta rætt á þessum jarðbundnu nótum þegar fótboltinn á í hlut.

Nú er ég sáttur við það að faglega sé tekið á málum. Ekki verið að rakka menn niður heldur bara tekið á þessu með yfirvegun. Svona á þetta að vera.

En þá vil ég líka að það sé tekið á hlutum svona þegar kallalandsliðið í fótbolta á í hlut. Nánast alltaf erum við að spila við lið sem ættu að vera betri en við. Betri aðstæður, fleiri menn til að velja úr og margt fleira. Við höfum náð verulega góðum árangri oft á tíðum sem hægt er að vera stolt af.

Ekki taka þjálfaran af lífi þegar hann velur leikmenn sem hafa kannski ekki spilað mikið með sínu liði, rétt komnir úr meiðslum. Tala um styrkleika andstæðinganna svo fólk hætti að gera kröfur í fótboltanum að vinna mikið betri þjóðir. Þetta allt hefur verið gert núna handboltanum í vil þannig að það eru í raun leikmenn sem dissa sjálfa sig. Þjálfarinn hefur alveg sloppið. Eina sem ég hef heyrt er frá Óla Stef um þjálfarateymið.

Ófagmennskan hefur því miður verið veruleg hjá sumum íþróttafréttamönnum. Kannski er það návígið í svona marga daga sem gerir þá meyra þegar þeir eiga að fara tala um handboltaliðið. Gæti kannski orðið til þess ef umfjöllunin verði betri hjá okkur í fótboltanum að liðið fari að spila betur.


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 11:11:42 / briet

Furðulegt

Alveg einkennilegt dæmi þetta með íþróttaumfjöllun. Ef íslenska karlalandsliðið í fótbolta gerir ekki eins og við viljum sjá þá eru allir rakkaðir niður. Þjálfarinn tekinn af lífi og allir fá 1 í einkunn. Þrátt fyrir það að aðstæður hér á landi og alheimsvinnsældir fótboltans séu okkur ekki í vil þá er krafan alltaf gríðarleg. OK ef það væri nú tekið svona heilt yfir og menn væru samkvæmir sjálfum sér.

Handboltalandsliðið hefur verið í ruglinu. Sigrar á móti Ungverjum og Slóvökum þykir eðlilegt dæmi. Töp gegn hinum svo sem eðlilegt líka en allt batteríið hefur verið í bómul. Hvernig stendur á því. Krafan ætti að vera sú að við eigum hreinlega að spila um fyrstu 6 sætin. Styrkur okkar á að vera slíkur og miðað við hvaða sess handboltinn á að hafa hér á landi þá ætti mótið að flokkast undir skandal hingað til og ætti að fjalla um það sem slíkt ekki þetta "undirrósatal" Ömulegt að verða vitni að þessu.

Ef það er á einhverjum stað sem á að gera kröfur þá er það í handboltanum, klárt mál. Sjálfsagt svipuð umfjöllun og áhugi á Íslandi og öðrum löndum sem stunda handbolta.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 09:30:53 / briet

Eins og börn

Fannst leikurinn við Frakka vera óvinnandi vígi fyrir okkur. Eins og ég sagði þá var ég ekki með góða tilfinningu fyrir þeim leik. Það sem kom mér á óvart var að sjá íslenska liðið eins og 3.flokk gegn meistaraflokki slíkir voru mannlegir yfirburðir Frakkanna. Hef aldrei séð strákana svona litla. Makalaust hvað þetta getur breyst á einu ári.  Enn eru leikhléin að valda mér vonbrigðum, algjört trúleysi í þeim og ringulreið.

Menn ræddu um það þegar Ólafur hættir þá eigum við fjölda öflugra leikmanna. Ég get ekki séð að liðið geti yfir höfuð verið án hans. Áttaði mig ekki á því hversu mikill yfirburðamaður hann er í þessu liði.

Hef ekkert sérstaka tilfinningu fyrir Þjóðverjaleiknum en á von á okkur stemmdari en áður í keppninni. Vorum reyndar óheppnir með riðil þar sem bæði Frakkar og Svíar höfðu mikinn metnað í að vinna okkur frá síðustu viðureignum. Unnum Svíana í fyrra og svo Frakkana. Hefur væntanlega verið auðvelt fyrir þessar þjóðir að mótivera leikmenn sína gegn okkur.

Eigum 7 leikmenn í landsliðinu sem fer til Möltu. Kom á óvart fjöldinn en tel þetta vera réttmætt. Gott mál fyrir okkur að svona margir fái flott verkefni. Styrkir okkur bara verulega fyrir sumarið. Meðan þeir verða í sólinni þá erum við öldungarnir með kjúklingunum heima í sporthúsinu,spinning og svona ferskum hlutum. Gæti orðið heimilislegt.

Var á fundi með stórn stjórnarmanna liðanna í landsbankadeildinni í gær. Vorum þarna fyrir hönd leikmanna ég, Tryggvi G, Gulli Jóns og Bjarni Guðjóns. Ræddum ýmislegt við Rikka Daða, Gísla Skagamanni og Jóni FHing. Fínn fundur en ég held að leikdagabreytingar verða ekki miklar fyrir sumarið þó svo ég geri mér vonir um einhverjar.

Frábært að sjá New England í superbowl en vildi fá Green Bay í stað New Y Giants. Klúður hjá Green Bay, ferlegt. Fannst flott að sjá Þórmund lýsa þó svo Henry Birgir sé á réttri hillu þarna í ameríska þá finnst mér Þórmundur magnaður og óskastaða væri þeir báðir að lýsa.

Og hvað með þessa pólitík? Nú væla allir sem bökkuðu upp óheilindi fyrir 100 dögum. Sami farsinn farinn af stað aftur. Maður skilur ekkert í þessu en er það bara ekki eðlilegt að Ólafur vilji vera borgarstjóri? Held það. Algjörlega að spila langt yfir getu þar en svona gerast kaupin á eyrinni.


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 11:37:23 / briet

Gott mál

Flottur leikur hjá íslenska liðinu í gær. Alveg magnaður fyrri hálfleikur í vörn og markvörslu en sóknin er nú eitthvað stirð. Frábært að hafa náð þessum stigum og svo gott sem komnir áfram sem er einmitt svo mikilvægt fyrir okkur sem fylgjumst með. Ákveðin deyfð í seinni hálfleik en það er eðlilegt. Vill frekar meina að Slóvakanir hafi ekki getað spilað verr en í þeim fyrri og gefið íslenska liðinu eðlilegan leik í þeim seinni.

Logi kom upp í gær og gerði góða hluti á tíðum. Var búinn að skamma hann eftir 1.leikinn. Garcia kallinn á vonandi eftir að koma upp. Ég vorkenni honum aðeins, með alla á bakinu. Er samt að spá í nýju taktíkina hjá Alfreð. Hann lætur menn bara heyra það í fjölmiðlum. Finnst aðeins vera að leka út hans samskipti við hvern og einn þarna þar sem hann er að ögra mönnum.

Hef fengið aðra tilfinningu en um daginn með Frakkaleikinn. Við erum ekki að fara vinna hann því miður.

Fannst gaman að sjá Eika Hauks þarna. Kallinn alltaf flottur og tók skilst mér lagið eftir leik á einhverjum pöbb.

Guðjón Ólafur Valsstjórnarmaður og Framsóknarmaður hefur heldur betur slegið í gegn með bréfinu sem hann sendi á Framsóknarmenn í borginni. Djöfull eru þeir sárir þarna í flokknum þegar þú nærð með svona bréfi að koma öllu á annan endan. Menn jafnvel að skoða það að hætta í flokknum ofl. Alvöru maður Guðjón. Enn gæti fækkað í liði Marinós Ólasonar Dalvíkings á næstu dögum.

Fyrsti leikur í móti var á föstudaginn við ÍR í Reykjavíkurmótinu. Unnum 3-0 í frekar svona janúarlegum leik. Var sjálfur eitthvað ryðgaður og á nú eitthvað inni hvað leikform varðar en það kemur. Vorum 3-0 yfir í hálfleik en náðum ekki að gera fleiri mörk. ÍRingarnir börðust nú vel eins og við mátti búast. En það er alveg á hreinu að við verðum að vera 10-20 % meira á tánnum gagnvart öllum en í fyrra. Þurfum bara að koma því inn hjá okkur og þá verður þetta í toppstandi.

Sá KRingana spila við Leikni þarna á eftir okkar leik. Virkuðu sprækir og verða með hratt lið frammávið. Margir sprækir, fljótir leikmenn þarna og nú er bara spurning hvernig KRingarnir verða í hausnum.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2008 09:33:54 / briet

Spennustig

Það er alveg ljóst að spennustig leikmanna íslenska liðsins var alltof hátt. Það gekk ekkert eftir nema þá vörnin og markvarslan gegn þessu ekki svo góða sænska liði. Útileikmenn sænska liðsins eru alls ekki nógu góðir nema þá Kim þannig að eðlilegt var að geta nú spilað góða vörn.

En hvað er með þessar skyttur okkar? Ekki bara núna heldur oft áður þá loka menn bara augunum og skjóta.

Logi Geirs er furðulegur stundum. Finnst hann klúðra oftar en ekki. Menn verða jú að skjóta en það er í lagi að meta hvenær það er á.

Garcia er ekki í takt og hann hefur greinilega ekki vantað hingað til ef farið er eftir frammistöðu leiksins.

Óli var ekki í standi enda meiddur og þá væri gott að geta kallað til Einar. En hann dúndrar bara og lokar augunum en skilar litlu, því getur Ólafur ekki hvílt sig. Erfitt fyrir Alfreð að eiga við þetta. Byrjunarlið stendur sig ekki og varamenn bæta svo ekkert. Hvað er þá málið?

Tomas Svenson las allt og settist alltaf. En hvað við skutum bara alltaf í hann eða niðri þar sem hann var kominn. Við skutum meira að segja í fótinn á markmönnum Svía sem þeir stóðu í þegar við tókum vítaköst. Allar færslur voru ferlegar og hræðslan ógurleg. En svona getur gerst og kemur alltaf til með að gerast en 2.mótið í röð er dálítið pirrandi.

Ég held að þetta fáranlega leikjaálag fyrir mótið geri þetta að verkum. Mæta sprækir til leiks ekki þetta leikjabrjálæði. Sigur í leik 3 dögum fyrir keppni poppar upp væntingarnar þannig að þjóðin fer fram á sigur í mótinu! Auðvitað verður spennan svakaleg hjá leikmönnum og svona getur því farið.

En við erum með gott lið og mikið betra en það sýndi í gær. Við göngum yfir Slóvakana og ég hef grun um að við tökum Frakkana sem verða búnir að vinna Svía.

Ánægður með vin minn Gumma Ben í þættinum utan vallar sem sýndur var í gær. Fínn þáttur. Sigmundur er ferlegur kallinn.

Athyglisvert viðtal við Sigga Örn. Fannst reyndar margt engu máli skipta í umræðunni milli Sigga og Arnars en þetta er að komast á koppinn og því gef ég þess séns.

Hvað er með moggamennina sem mæta í sjónvarpið? Það lekur af þeim fýlan eða er þetta hroki? Halda þeir að þó þeir skrifi um íþróttir þá geti þeir gengið yfir alla. Leikmannasamtök eiga ekki að skipta sér að leikdögum! En Gummi svaraði vel fyrir okkur leikmenn og ég var sammála honum í einu og öllu nema kannski vildi sjá hann glaðari með Keegan.


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 08:46:20 / briet

Ísland-Svíþjóð

Þegar ég bjó úti í Svíþjóð þá man ég eftir að Ísland hafi spilað við Svía. Fyrir utan svakalegan rasisma þá var hrokinn og sigurvissan ömurleg hjá þeim þegar maður ræddi leikina yfirleitt. En nú er öldin önnur og við erum sigurstranglegri held ég. Svíarnir eru hræddir og óttast okkur mikið. Ég hef á tilfinningunni að við vinnum með einu marki 28-27. Reyndar erum við að væla dálítið. Þessi og hinn fengu sting í lærið ofl. Er það ekki alltaf þannig. Menn eru alltaf með einhver smámeiðsl og ekki talandi um það.

Helstu menn liðsins eru auðvitað Óli Stef og Guðjón. Ég á reyndar von á því að Hannes Jón gæti orðið jóker. Það er einhver ferskleiki með honum. Hann er líka góður handboltamaður sem getur gert mjög óvænta hluti. Svo gæti orðið gaman að sjá Garcia. Alveg ótrúlegt eins og það nær nú langt að stórmót eru á hverju ári en aldrei spilar Garcia. Maður hefur enga tilfinningu fyrir honum.

Svo er eitt sem ég skil ekki. Það er þetta gríðarlega leikjamagn sem er fyrir öll mót. Mótið sjálft gæti orðið 8-10 leikir á jafnmörgum dögum nánast. Og menn tala um gríðarlegt álag nánast ómennskt. En hvað? Það er búið að spila heilt mót af æfingaleikjum dagana fyrir mótið. Alveg ótrúlegur fjöldi leikja. Finnst að það eigi að gerast í síðasta lagi 2-3 vikum fyrir mótið og svo max 1 leikur vikuna fyrir. Alveg ótrúlegt dæmi.

Á meðan arfaslakt gengi Liverpool gengur yfir og sú staðreynd að sólin hækkar ekki á lofti í þeirri ágætu borg þvert á náttúrulögmálið þá get ég þó glaðst yfir einu. Það er auðvitað að Kevin Keegan er mættur aftur í boltan. Mér fannst alltaf alveg magnað að fylgjast með leikjum Newcastle þegar hann stjórnaði. Sóknarbolti, áræðni og ástríða. Fá á sig 3 en skora þá bara 4 (nema gegn LFC), áhorfendavænt stöff. Hefði bara viljað fá hann í Liverpool.

Spái því að við Valsmenn verðum svo með 5 leikmenn sem fara til Möltu með landsliðinu eftir hálfan mánuð. Vill bara vera á undan fjölmiðlum með nöfnin. Bjarni, Birkir, Atli, Pálmi og Balli Q. Menn á toppaldri og í góðu standi. Framtíðarmenn ásamt fjölda annarra spilara hjá okkur. (Nú væri gott að vera yngri)


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 09:27:44 / briet

Grein Sigmundar

Svakalega var ég ósáttur við grein Sigmundar Ó í mogganum í gær. Þar fer hann með þvílíkan leirburð að hálfa væri nóg um leikmenn og leikmannasamtökin. Talar um að við ættum bara að þegja og þiggja launin okkar. Hætta að skipta okkur af störfum stjórnarmanna. En hann er ekki að átta sig á því að leikdagar skipta leikmenn máli hér á landi. Og ég er sannfærður um að það myndist meiri stemmari þegar spilað er á miðvikudögum og fimmtudögum heldur en mánudögum. Svo eru nú aðal leikdagar á Englandi og víða laugardagar þó tv leikir séu á sunnudögum. Best væri að spila einmitt á laugardögum en við höfum nú ekki krafist þess hér á landi.

Svo þetta að menn stökkvi alltaf frá borði þegar illa gengi:^) Sem sagt ömurleg grein og Sigmundi ekki til framdráttar enda er þetta orðið bákn þarna á mogganum. Handboltaívar og fleiri. Víðir,Gummi Hilmars og körfuboltaSigurðurElvar eru reyndar flottir.

Spiluðum við Keflavík í gær. Ferðin tók ca 1,5 tíma því veðrið á Reykjanesbrautinni var afleitt sem og eitthvað slys. Mættum sem sagt of seint og upphitun stutt. En við vorum vaknaðir og rúlluðum vægast sagt yfir Kef 6-0 þar sem 4-0 var í hálfleik. Kjarri byrjaði. liðið frá vinstri var Bjarni Ólafur,Atli,Einar Marteins,Birki. Miðja Danni Hjalta,Bjössi Hrei,Pálmi,Balli Q. Frammi Helgi Sig og Albert Inga.

Var ánægður með þetta. Fyrsti leikur í 3,5 mánuði. Var nokkuð ferskur en samt ekki í neinu leikstandi. Við vorum þó mjög sprækir enda áttu menn bara að spila hálfleik. Ég er ánægður með þéttleikan sem er góður. Vorum hættulegir í öllum aðgerðum og hleyptum Kef ekki upp með neitt. Þá vantar reyndar eitthvað af mönnum og hafa ekki verið í miklum bolta uppá síðkastið. Þrátt fyrir sterkan hóp hjá okkur þá vantaði marga sem gera tilkall í liðið og 18 manna hópinn. Gummi Ben, Rene Carlsen, Dennis Bo, Habbó, Barry, Gunni Einars, Balli Bett, EvrópuBaldur, Kató, Steinþór og einhverjir fleiri. Þannig að við eigum að geta litið vel út. Samkeppnin mikil og af hinu góða, enda mikið af leikjum og þörf á öllum þessum spilurum.

Sá svo FYlki-FH á sunnudag. 3-2 leikur FH í vil. Sá reyndar fyrri hálfleik bara og þar voru FH ingarnir flottir og virkuðu mjög vel á mig. Fylkismenn voru þyngri og það var talsverður getumunur á liðunum í þessum hálfleik fannst mér.


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 10:18:05 / briet

Flottur þáttur

Þátturinn utan vallar sem hóf göngu sína á sýn síðsta fimmtudag var bara í góðu lagi. Reyndar var nú frekar lítið púður í Gauja og Geir Þorsteins. Vildu ekki vera að æsa neitt upp þarna og fóru báðir réttu megin frammúr. Var reyndar ánægður með að Gauji var eindregið með því að spila leiki á Íslandsmótinu á fimmtudögum eins og allir leikmenn vilja og örugglega flestir áhorfendur líka. Skandall að það séu mánudagar sem menn hafa sett sem aðalleikdaga.

Fannst Alfreð góður og er greinilega í topp standi kallinn. Hann nýtur mikillar virðingar útum allt og vonandi nær hann góðum árangri með liðið.

En svo komu Henrý Birgir sem var þokkalegur fyrir utan að hann var sáttur við að úrslitakeppnin í handboltanum hafi verið lögð niður. Mér finnst það hafa eyðilagt handboltann enda koma síður en svo fleiri áhorfendur á leiki í dag. Það hefði bara þurft að vinna 3 leiki til að komast áfram ekki 2 sem gaf lélegri liðunum meiri möguleika á að komast í úrslit.

Svo var með Henrý þessi handboltaÍvar frá mogganum sem hugsar bara um handbolta enda alltaf sendur út af örkinni þegar handbolta á að spila. Hann var frekar neikvæður kallinn og þurr, puðraði setningum útúr sér og virtist hafa allt á hornum sér.  Sá svo engan tilgang í því að íþróttafréttamenn gæfu upp atkvæðaseðilinn sinn. Finnst reyndar rök með og móti því. Fínt að sjá seðilinn bara til að skoða hvort einhver sé settur óeðlilega neðarlega til að kom a öðrum að. En gæti hinsvegar gert það að verkum að ef hann yrði sýndur þ.e. listinn þá gætu einstaklingar orðið hræddir með að velja eftir sinni sannfæringu, t.d. setja blakmann í 1.aætið og verða fyrir aðkasti fyrir það. En ég er sammála Herði Magg þetta er furðulegt oft á tíðum en allir eru þetta flottir íþróttamenn og erfitt að gera upp á milli.

Las alveg frábæra grein á bloggi Henrýs Birgis þar sem hann kódaði í Loga handbolta Geirs sem sagði frá því að hann hafi verið stoppaður á Kastrup. Þar hafi hann verið að ganga í gegnum tollskoðun og lögreglan hafi stoppað hann og sagt

“Ekki hérna í gegn kallinn minn”. Þetta voru orðin sem maður fékk að heyra frá öryggisvörðunum í Kastrup þegar ég ætlaði í gegnum öryggishliðið. Þú ferð ekki með þessar Byssur hérna inn og ég skildi ekkert hvað hann var að tala um fyrr en hann greip í upphandleggina á mér og glotti;)

Annars er ég að verða geðveikur á þessu Liverpool liði. Hvaða aumingjaskapur er þetta helgi eftir helgi? Nú verður bara eitthvað að fara að gerast. En hvað er hægt? Verð að hrósa Man Utd fyrir æðislegan sóknarbolta.

Nú fer ballið að byrja hjá okkur Valsmönnum. Leikur á morgun gegn ÍBK í Kefl og svo gegn ÍR á föstudag í RVK mótinu.

                                                             

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 19:33:53 / briet

Luton/Liverpool

Tvö af mínum uppáhalds liðum gerðu furðulegt jafntefli í bikarnum enska. Liverpool gegn Luton. Ég var ekki sáttur þegar mínir menn LFC féllust ekki á að gefa aðgangseyrinn eftir til Luton sem er á barmi gjaldþrots. Þess vegna fagna ég því að þurfa spila aftur svo það rætist nú eitthvað aðeins úr málum Luton. Man eftir því þegar ég og Addi gamli vinur keyptum okkur Luton boli og mættum brattir í leikfimi á Dalvík hér um árið. Þess vegna stendur mér alls ekki á sama um það félag.

Hinsvegar er ég farinn að efast all rækilega um LFC. Spila hvern aumingjaleikinn á fætur öðrum. Oft skil ég alls ekki hverjum hann er að stilla upp. Það er ekki nóg að spila eitthvað útileikjaevrópukeppnis kerfi allan helv... veturinn. Vera með tennisspaða frammi osfrv. Það verður að fara gerast eitthvað. Ég er svo sár þar sem ég sá á Liverpoolstöðinni gamlar myndir en ekki svo gamlar þar sem við vorum að yfirspila önnur lið. Svaka spil og sóknarleikurinn í hávegum. Nei svo kemur tími þar sem það á að fara horfa á markaðsmálin og því erum Norðmenn sem geta lítið keyptir inn. Kvarme, Björneby, Rise og eitthvað svona lið. Hvernig eigum við að ná árangri. Helgi eftir helgi sér maður Man Utd, Arsenal og fleiri lið spila mikið skemmtilegri bolta.

Gæti ekki verið flott að stefna á Morhinio? Held það. Benites kallinn er traustur en hann nær því ekki út úr LFC sem maður vill sjá. Hann gæti verið með Everton eða lið sem eru góð, rétt við toppinn en samt ekki ætlast til að þau vinni titilinn ár eftir ár eins og hjá LFC.

Já ég er pirraður á því að vera búinn að kveðja enska bikarinn um jólin ár eftir ár.


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 21:21:56 / briet

Gleðilegt ár

Alveg magnað hvað fólk skiptist í hópa varðandi áramótaskaupið. Mér persónulega fannst það ekki gott. Hló aldrei almennilega, stundum ha ha en ekki meir. Fannst Gnarr góður og svo brandarinn með Hitler þokkalegur. 40 mínútur rúmar og þar af stór hluti að stæla Lost. Ekki alveg nógu sáttur. Svo verð ég að tjá mig um þessa Kaupþings auglýsingu. Fara seðilgjöldin í þetta rugl. Ef ég hefði fengið þessar millur sem var eytt í þetta þá hefði ég geta gert betur. Vonandi verður þetta ekki árlegt.

Var hjá mágkonu minni og svila. Sprengdum slatta og mikið líf og fjör. Ekkert að veðrinu. Var reyndar hálf búinn að drepa tengdapabba minn ásamt hundi hans. Var að sprengja eina bombuna fyrir utan húsið. Vantaði eitthvað til að setja hana ofaní enda klukkan ekki mikið. Ákvað að troða henni í snjó sem var þarna við dyrnar. Svo kveikti ég en hún fór ekki upp, ég gargaði allt liðið frá en tengdó reykti bara sína rettu 3 metra frá sprengingunni. Þvílík læti og reykur, hundurinn þurfti nánast hnoð og ég andaði léttar þegar ég sá kallinn koma útúr reykmökknum, en þvílík læti. Átta mig á því hvað það skiptir miklu máli að fara vel með þessi tól.

Atburður síðasta árs auðvitað þegar ég lyfti bikarnum langþráða. Skandallinn að sjálfstæðisflokkurinn missti borgina sem og Lúkas sem er náttúrulega svo hallærislegt. Sá úr fréttaglefsum ársins þegar kerti voru tendruð á einhverri tjörn með kvennmenn vælandi utan í karlmanni sínum. Ömulegt að sjá þetta rugl.

Svo er ég einn af þeim sem vill sjá Íþróttakonu og íþróttamann ársins.

16-0 hjá New England og nú er það bara ofurskálin. Liverpool í lagi en betur má ef duga skal. EM að byrja í handboltanum og verð að segja það, magnað sjónvarpsefni og er það frábært að geta alltaf séð þetta í jan.

Greiningadeildir og peningamenn að tala um versnandi ástand og að allt sé að fara fjandans til. Gæti þetta verið útaf því að kjarasamningar séu lausir? Á nú aðeins að draga úr þeim sem hafa ekki notið góðæris undanfarin ár og fá samviskubitið upp. Nú gætu kennarar og aðrar láglaunastéttir rústað stöðuleika þjóðarinnar með því að fara fram á hærri laun:!:

Las rosalega góðar bækur um jólin. En verð að minnast á Þúsund bjartar sólir eftir höfund Flugdrekahlauparans Khaled Hosseini. Alveg mögnuð bók. Maður fær virkilega samúð með persónum og þetta er bara æðislegur höfundur að mínu mati. Eftir lesturinn þá eins og oft áður áttar maður sig betur þá því hvað maður er nú heppinn að vera norðurlandabúi.


» 1 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 60061
Saga
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 26 febrúar
Textabox