bloggsvæði Bjössi

Velkomin(n) á svæðið MITT

21.08.2007 08:39:00 / briet

Jaja

Nú er maður aftur kominn við tölvu sem hægt er að skrifa við. Þ.e. skólinn að hefjast. Er svona nokkuð ferskur og er svona með nokkra punkta í huga.

Fyrst ber að nefna að Þórey Edda er MÆTT til Japan að keppa samkvæmt mogganum. Finnst eins og hún sé meira að trappa sig niður svona í lok ferilsins en hitt, hætt að hoppa yfir 4 metrana sem voru svo magnaðir hér á síðustu öld. Hvað er málið alltaf með þetta frjálsíþróttalið? Ef við eigum ekki möguleika í fótbolta á alþjóðavísu þá er það pottþétt að það er ekki að fara að gerast í frjálsum á næstunni.

Sigur tekinn af Liverpool um helgina. Skandall. En dómarinn fékk rautt og eins leiks bann sem eru makleg málagjöld. Ég vil hinsvegar ekkert refsa honum neitt meir, hann bara dæmir svo næstu helgi. Þetta má ekki vera of hart.

Sven Göran að stimpla sig inn og er ég sáttur við það. Það eru nefnilega ekki bara rugludallar hér heima í þessum iþróttafréttum einsog áður hefur komið fram hér. Heldur eru þeir nú nokkrir greinilega þarna í Englandi. Hvernig kallinn hefur fengið að finna fyrir því. Að hann sé nú ekki merkilegur pappír og fleira. Vildu frekar einhvern enskan jólasvein í landsliðsbrúnna m.a. Og nú er ég bara sáttur með að hann stingi aðeins uppí þetta lið.

Vill Þakka HK fyrir að halda góðu lífi í boltanum hér heima. Stóðu sig vel gegn FH þó svo að FHingar hafi sótt mikið meir. Reyndar verðum við aðeins að koma aftur upp svo að við getum nú gert harða atlögu að titlinum.

Annars hefur sumarið farið bara nokkuð ljúflega í gegn. Gott veður og flestir bara í stuði. Leit m.a. á Dalvík um verlsunarmannahelgina sem var virkilegt kikk enda hleður maður alltaf þegar maður fer þangað. Sennilega snyrtilegasti bær landsins en maður vissi það nú fyrr. Ánægður með að Svanfríður bæjastjóri Dalvíkurbyggðar hafi fest kaup á mínu gamla heimili þar Görðum(fyrir þá sem þekkja til).

Maður hefur líka tekið útvarpsmennskuna föstum tökum í sumar en verð eitthvað að breyta þeim málum. Verð skiljanlega ekki alltaf með enda kemst ekki. Hinsvegar verð ég reglulega í símasambandi og hugsanlega með einhver horn þarna um málefni. Held bara að Reykvíkingar og aðrir landsmenn hafi gott af því að ég verði áfram í loftinu;)


» 1 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  40  Alls: 60238
Saga
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 26 febrúar
Textabox