Árið á enda. Byrjaði þvílíkt vel. Man eftir því að hafa startað því nánast á nýjársfagnaði Vals með öllu því besta sem hægt var að hugsa sér. Einhver besta flugeldasýning í langan tíma og þetta leit þvílíkt vel út.
Þá hugsaði maður ekki um þessa vitleysu sem er í gangi núna. Á öllu átti ég von á undan því að ríkið færi að hækka skatta og þúsundir missu vinnu. Sá ekki fyrir allt þetta kjaftæði og bögg sem er í gangi núna. En fljótt skipast veður í lofti eins og sagt er. Mögru árin eða vonandi árið er framundan. Það verður spennandi og vonandi standa allir uppréttir eftir það þó harðni á dalnum.
Átti alls ekki von á því að fólk færi frekar eftir Völvunni heldur en framamönnum í þjóðfélaginu eins og ástatt er nú.
Átti heldur ekki von á því að flugeldar myndu hækka um 40% þrátt fyrir að meirihluti þeirra sé frá því í fyrra! Skandall og stórfurðulegt. Stærsti fjölskyldupakkinn á 19 þúsund!!

Rosalega fór ég á gott gigg á laugardaginn. Hitti nánasta vinahópinn á árlegu spilakvöldi. Förum venjulega í bústað en nú er einn af félögunum Ingó í Danmörku en var hér yfir jólin. Tilvalið að gera eitthvað úr því. Dagurinn tekinn með körfu og gleði í heimahúsi eftir það. En enduðum á Players þar sem Bubbi og Egó spiluðu. Var í frábærum fíling alveg framundir morgun og í raun langt síðan ég hef tekið svona á því. Og svakalega var kallinn góður!

Fékk skíðaskó og stafi í jólagjöf m.a. Og þrátt fyrir að telja mig vera Dalvíking þá hef ég ekki verið rismikill í þeirri íþrótt. En þar sem fjölskyldan er öflug á skíðum þá er verið að draga mig með. Nú er engin afsökun og kem ég til með að vera orðinn slarkfær eftir veturinn. Var alltaf hræddur við að skemma fótboltaferilinn á þessum skíðum svo ég var bara með Adda Eggerts að stúdera knattspyrnu þegar aðrir fóru í fjallið í gamla daga á Dalvík.

Óli Stef verður svo valinn íþróttamaður ársins á næstu dögum. Held að Katrín Jónsdóttir verði íþróttamaður Vals á morgun og ég hef mjög mikla trú á skaupinu á morgun. Einnig hef ég ótrúlega mikla trú á að enn eitt árið verðum við svili minn bestir í götunni hvað flugelda varðar.
En gleðilegt ár og hafið það sem allra best þið sem rekist óvart eða að vilja inná þessa síðu.