Páskadagur runninn upp og það sólríkur. Tilvalinn upprisudagur í víðum skilningi. Allt að verða vitlaust í þjóðfélaginu útaf spillingu og röngu siðferðismati (eins og það sé nýtt). Ekki gott að vera sjálfstæðismaður núna.

Boltinn á fullu. Ég meiddur í nára og hef aðeins verið að ströggla með það síðustu vikurnar. Verð í standi þegar mótið byrjar líkt og í fyrra á ég von á.

Annars er það að frétta að Lengjubikarinn er á fullu og síðasta umferðin framundan í riðlunum. Hef aðeins séð af leikjum og finnst ekkert lið og þar með talið við vera búin að mótast nema FH sem virka mjög sterkir núna. Finnst þeir eins og við Valsmenn vorum í fyrra á sama tíma.
Stjarnan og Fylkir komast uppúr sínum riðli og skilja m.a. KR eftir með sárt ennið. Bæði lið með unga stráka sem eiga að vera sprækir núna og eru. Við eigum reyndar Fylkir í fyrsta leik í Árbænum og verður það svaka leikur.
FH og Þróttur komast uppúr sínum riðli og það nokkuð örugglega. FH langbestir þar og mjög liklegir.
Grindavík og Sennilega HK fara uppúr sínum riðli þar sem Fram og Keflavík sitja eftir. Grindvíkingarnir líta vel út segja þeir sem hafa séð þá. Eru komnir með lið fyrr í mótun þetta árið en mörg undanfarin og eru fínir. Sá þá reyndar um daginn gegn HK og þar var ég ekki imponeraður en þeir virðast hafa bætt sig mikið ef marka má heimildamenn.
Svo er það okkar riðill þ.e. Valsmanna. Ræðst um næstu helgi. Við, Breiðablik,Fjölnir og Þór eigum öll möguleika. Reyndar nægir okkur og Blikunum sigur til að vera örugg áfram. Við eigum KA fyrir norðan og Blikarnir eiga Aftureldingu og Fjölnir á Þór fyrir norðan svo þetta verður spennandi.

Við Valsmenn erum svo að segja nýbyrjaðir að æfa við viðunandi aðstæður þ.e. á stórum velli með markmönnum. Já þið lesið rétt. Vorum í sporthúsinu frá jan alveg þar til fyrir 2 vikum á litlum velli, í raun innanhús (sem er gaman í nóv-jan). Þannig erum við ekki alveg búnir að stilla strengi en það er allt að koma og bara spennandi næstu vikur. Leikur okkar á því eftir að styrkjast mikið og verðum við vonandi til alls líklegir þegar mótið byrjar. Mannskapurinn er svo sannarlega til staðar og komnir með Togga Þráins sem er bara til að styrkja hópinn.

Eins og staðan er núna þá líta FHingarnir langbest út. Grindvíkingarnir þokkalega. Aðrir eiga svo eftir að stilla allt frá lítillega til verulega fyrir mótið.